Nú er fokið í flest.......

Nú á að taka það bleika og bláa frá okkurCrying  eins og ég leit nú vel út á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum á sínum tíma, klæddur í skínandi bláan samfesting með fallegt blátt armbandWink  Framtíðin er sú að allir nýburar skulu klæddir í hlutlausan lit, helst gráan eða í gamla sauðalitinn okkar Íslendinga þann brúna. Í staðinn fyrir bláu og bleiku armböndin kemur stimpill... þetta er stúlka með svörtu blekiWoundering  Kolbrún Halldórsdóttir vill burtu liti sem aðgreina kyn, öll börn skulu klædd í kynlausa liti og hana nú, bara einn eða tveir ríkislitirAngry  Hjúkket að ég á enn armbönd barna minna, ætla geyma þau vel.

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Er þetta jafnrétti?
Hvað með gulan, appelsínugulan eða bleikbláan -
Ég á líka 3 blá og eitt bleikt armband ... ætla að geyma það vel.

Linda Lea Bogadóttir, 28.11.2007 kl. 22:47

2 identicon

Æi mér finnst þetta voðalega kjánalegt. Veit það ekki en ég sé engan mun á börnum þegar þau eru nýfædd, veit sjaldnast hvort að um stelpu eða strák sé að ræða. Þetta lita dæmi getur bjargað mér í framtíðinni frá vandræðalegum mómentum. Af hverju að breyta þessu?

Stebbi Gje (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 13:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband